Menn menn menn gleði gleði gleði:)

Kjútí pæs :)

07.07.2008 21:20:06 / snædís

Til hamingju með afmælið sæta;*

Elsku Tinna Rós til hamingju með afmælið sæta mín, ég veit að þú fékkst ekki færslu á síðasta ári og hefur alveg látið okkur heyra það í heilt ár. En það eru breyttir tímar og hér kemur afmælisfærsla :)

HÚN Á AFMÆLI Í DAG
HÚN Á AFMÆLI Í DAG
HÚN Á AFMÆLI HÚN TINNA RÓÓÓSSS
HÚN Á AFMÆLI Í DAG


t.jpg picture by hjartardottir_album

Velkomin í hóp okkar fullorðna fólksins;*;*

TogS.jpg picture by hjartardottir_album
Love jú ástin mín

XOXO S.


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 02:10:29 / Tinna

ammæli..


 

jæja þá er komin 19 apríl sem þýðir að Snædís Hjartardóttir á ammæli!!
skvísan er 21 í dag (sem henni finst alveg hrikalegt, af því að þá er hún orðin tuttugu-og-eitthvað)...  :)
langaði bara til að segja til hamingju með ammælið ástin mín, vonandi muntu eiga frábæran ammælisdag...


  
 
 

...love you, love you, love you!!



» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 20:05:47 / Tinna

ojjjjj!!!

 

Dómari í Dijon í Frakklandi hafnaði í gær kröfu frönsku kennslukonunnar Chantal Sebire um að fá að deyja með aðstoð lækna.

Sebire, sem er 52 ára og 3 barna móðir, þjáist af ólæknandi krabbameini í nefholi og hefur æxli afmyndað andlit hennar. Serbier finnur fyrir stöðugum sársauka vegna þessa. Hún sér illa og hefur misst bragð- og lyktarskyn. Hún segir börn hlaupa skelkuð frá sér sjái þau hana á götu.

Þrátt fyrir frjálslynda löggjöf Frakka um líknardráp taldi undirréttur að hún ætti ekki við í þessu máli. Frakkar hafa mikla samúð með Sebire en mál hennar hefur vakið deilur.

Sebire ætlar ekki að áfrýja dómnum og ætlar jafnvel að fara til Sviss þar sem löggjöf um líknardráp er enn frjáslyndari en í Frakklandi.

PÆLIÐ Í ÞESSU?!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 10:59:14 / Tinna

jeij það er næstum því komin helgi...

Jæja stelpur, þessi síða er nú bara alveg að deyja út held ég:s komin tími á smá blogg...

..VÁ hvað tíminn líður hratt núna, maður er nýbúin að jafna sig á þynnkunni og þá er komin helgi aftur og svo fara páskarnir að koma og svo bara próf..:^)
..ég ætla að gera eitthvað sniðgut um helgina, þar sem mamma og pabbi stungu af til Köben.. það verður allaveganna einhver stelpuhittingur á Laugardaginn held ég ;)

en hey ég er búin að finna mér nýja uppáhalds-slúður-síðu :haha:

tjékkið á henni: http://www.gossip.is/

þetta er svona eins og Íslenskt Perez Hilton.. bara slúður af fræga fólkinu :) ýkt skemmtó..

   
 
Vá hvað þetta er skemmtileg færsla.. hahaha not...
hef ekkert meira að segja í bili allaveganna :)
Jæja ég ætla að drífa mig í Nát123 (sem ég skil EKKERT í!!)

 Tinna Rós :d


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 19:28:28 / Dorthy*

Viljiði hjálpa??

 

 

Halló :)

 

Allir sem eiga gömul eða notuð föt heima sem þeim vantar að losna við fyrir góðan málstað talið við mig og Snædísi..:)

Þau verða þá seld á flóamarkaði FÁ sem verða á árdögunum og peningurinn fer beint í að byggja skóla fyrir fátæk börn..

Annað mál á dagskrá:
Það er dinner og djamm heima hjá Söndru næsta föstudag fyrir Réttó-stelpur;)
Hlakka til að sjá ykkur:)

Dóra Björk*


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 13:37:37 / Dorthy*

Smá up-date;)

jææææææææja

 

Við erum rosalega slappir bloggarar..
Það er örugglega hálft ár síðan ég bloggaði seinast

En jæja ég ætla að blogga í tilefni að eyðunni sem ég er í..

Það er búið að vera alveg rosalega mikið að gera á nýja árinu og þetta verður ábyggilega ein af skemmtilegri önnum menntaskóla-áranna hjá mér þar sem ég er jú að fara að útskrifast, vá hvað það verður gaman:)

 

En ég ætla að koma með stutt yfirlit:

 

TINNA RÓS:

Er á fullu í FB og er víst alveg hrikalega dugleg í skólanum (er mjög stolt af þér Tinna) en henni leiðist víst soldið án okkar:)
Hún er líka að vinna uppá leikskóla alltaf eftir skóla og er svo líka með honum Svenna sínum:)

SNÆDÍS:

eða Probation-Snædís eins og við viljum kalla hana þessa dagana hahaha er í FÁ og hún og Óli aðstoða eru víst orðnir perluvinir og eru á fundum saman reglulega (Snædís ég er djellös) og svo er hún á fullu í atvinnuleit (hún var komin með leið á Bónus) svo er hún alltaf dugleg í að rækta vinkonusambönd sín og eyðir ófáum stundum á Vegó.. En hún ásamt mér er búin að vera róleg í djamminu enda löngu komin tími fyrir það hjá okkur:)

ELLA:

Er að fara að dimmitera með mér þessa önn og útskrifast svo í lok sumars. Hún er á fullu að þjálfa handbolta ásamt því að æfa sjálf og eyðir stundunum þar á milli í Kaupþingi að vinna eða með Mána sínum.. Svo er hún líka formaður útskriftarhópsins og sér um það að allar nefndir vinni sína vinnu fyrir dimmisjon daginn mikla..

ÍRIS TARA:

Er farin aftur út til Írlands og er þetta allt voðalega óákveðið með framhaldið. Við stelpurnar viljum auðvitað fá hana heim eins og skot en þetta verður bara að koma í ljós.. svo er hún líka í 15 einingum í fjarnámi í FÁ:) dugleg stelpan;)

HELGA MARÍA:

Er í FÁ með mér og ætlar líka að útskrifast með mér og Ellu ásamt því að stelpan er ólétt;)
Hún og ívar okkar eru að fara að koma með lilla baby í heiminn í júlí.. oooo hvað mig hlakkar til;)

ÉG SJÁLF (Dóra):

Er í FÁ að fara að útskrifast (eins og ég er búin að segja NOKKRUM sinnum haha) og svo er ég að fara til Barcelona í apríl með spænskuhópnum mínum og er að vinna í Sport- og Þrekhúsinu þannig að það er nóg að gera;) Svo er ég líka hætt öllu sukki og ógeði og orðin rosa healthy :) það gengur bara þvílíkt vel;)

 

Við hittumst á laugardaginn ég, Tinna, Snædís og Eyrún og elduðum kjúkling heima hjá Tinnu og spiluðum Actionary og höfðum það voða gaman og fengum okkur nokkur kampavínsglös og enduðum mis-skrautlegar niðri í bæ:)
Ég var allavega uppgefin þarna um 6 leytið og stakk af af því að líkaminn minn var gjörsamlega búinn á því og ég tók leigó heim með einhverjum gæja sem vorkenndi mér svo í kuldanum haha og endaði svo í hálftíma spjalli við leigóinn sem ég hélt að væri 25 ára en hann var svo 55 ára (spurning hvort hann hafi verið unglegur eða hvort áfengið hafi haft svona hrikaleg áhrif á sjónina:) )
ég er líka að setja inn nokkrar myndir á myspace frá laugardeginum (www.myspace.com/dorabjork87)

En eitt mál á dagskrá, hvað segiði með sumarið stelpur??
Ætlum við að fara eitthvað út?? og hvert þá??
mér langar svo ógeðslega í sólarlandaferð eitthvert:)


En þetta er nóg í bili..
hvet alla til að fara í FÁ og kaupa sér bollu í tilefni að bolludeginum og styrkja í leiðinni Spænskuhópinn minn í ferð til Barcelona;)

ADIOS AMIGOS
Dóra Björk*


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 19:18:26 / Tinna

ERUÐIÐ EKKI AÐ GRÍNAST!!

 

HEATH LEDGER ER DÁINN!!

 

Hann fannst látinn í íbúð sinni í Soho í New York í gær.

Hann var aðeins 28 ára gamall og lætur eftir sig tveggja ára gamla dóttur. New York Times greinir frá því að pillur hafi fundist í grennd við líkið.. ég á ekki til eitt aukatekið orð!! díses kræst!!

hérna er mynd frá því að hann var borinn út úr íbúðinni sinni..

                                           R.I.P


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 14:52:53 / elisabet

Hvaða rugl er þetta?????

Hæ hæ
Vil bara hvetja alla til að kjósa.. "Nýja" borgastjórnin
að skíta alveg uppá bak.....
 Ólafur F. Magnússon (sem samkvæmt nýlegri könnun er með aðeins 
3% fylgi!!!) er nýr borgarstjóri Reykjavíkur, nýkominn úr löngu veikindafríi 
og það virðist lítið annað en græðgi stjórna því að hann sleit samstarfi við 
fráverandi meirihluta og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn sem samkvæmt 
sögunni bauð honum gull og græna skóga til þess að hefja nýtt 
meirihlutasamstarf.
 
Ég veit ekki hvernig þeir ætla að halda þessu rúllandi því að þarna virðist 
EKKERT sitja á prjónunum nema valdagræðgi og hefndarfýsn.

 
Þið getið lesið ykkur til um þetta mál á mbl.is og visir.is og sett nafn 
ykkar á undirskriftarlistann hér:
http://www.petitiononline.com/nogbodid/petition.html
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 11:51:57 / Tinna

nei nei hvaða hvaða Bobby Fischer dáinn!

 

Robert Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, er látinn eftir alvarleg veikindi. Hann lést hér á landi í gær 65. ára að aldri. Fischer sem var fæddur og uppalinn í New York var undrabarn í skák og 13 ára tefldi hann eina frægustu skák 20. aldar gegn bandaríska meistaranum Donald Byrne.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins dvaldi Fisher á sjúkrahúsi í Reykjavík í október og nóvember en á heimili sínu í Reykjavík síðustu tvo mánuðina. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 13:29:15 / Tinna

jólakveðja

Gleðileg Jól

..og takk fyrir allar góðu stundirnar á árinu sem er að líða!

lovjú gæs :)

kv.Tinna Rós


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 18:53:03 / Dorthy*

Greyið Íris mín*

 

 Æjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj litli Íbbulingurinn minn er föst ALEIN uppá flugvelli í London!

Litla greyið, ég vorkenni henni svo vængefið mikið, hún er búin að hanga þarna alein frá því kl 11 í morgun eða eitthvað:S og þarf að hanga þónokkuð lengur í viðbót!!
Helvítis veður!

Íris mín ég bið til Guðs að veðrið fari að batna svo flugið geti farið af stað..
váá hvað þetta er ömurlegt:S
Lovjú og ég sé þig allavega á morgun;)

Can´t wait!!

\"\"

Kv. Dóra*


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 16:48:35 / Tinna

2 vikur!!

 

Það eru bara tvær vikur í írisi!!! jeijjj.....

hlakka til að sjá þig sæta... lovjú!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 21:46:38 / Tinna

músí músí mús...

mér finst þetta svo ógeðslega krúttó.. hahaha... þetta er pinkulítill broddgöltur, mig langar ýkt mikið í svona... músí músí mús...


» 14 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 23:38:02 / Dorthy*

Nýji kjæróinn er FOKK heitur*

 


Stelpur ég ætla að kynna ykkur fyrir nýja kærastanum mínum...Ég er hætt með McDreamy og byrjuð með öðrum;)  \"\"   \"\"   

 

             

Sjáið hvað hann er heitur!! Ohh ég er svo ánægð með hann:)
Við ætlum að gifta okkur næsta sumar:*

* Vildi líka bara minna á að það eru bara 22 dagar í Íbbulinginn minn!!!!!!Pant fá fyrsta knúsið!!!!

   Lov-jú*
-Dóra Björk-


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 17:42:55 / Tinna

er ekki allt í góðu?!

 

hvað er í gangi??  hver leifir barninu sínu að verða svona feitt.....

hún er 7 ára gömul og orðin 400 pund sem er eitthvað 200 kíló.. hún borðar 16 hamborgara á dag og drekkur 15 lítra af kóki og eitthvað... ??!! og hún er orðin svo feit að hún getur ekki staðið í lappirnar... 7ára?! fólk er fífl!!

 

http://www.youtube.com/watch?v=I6j6GcP3-uQ

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 30
Myndasöfn